Hvernig á að setja miðana á

Rétt settur miði þolir þvott og venjulega notkun. Hér eru leiðbeiningarnar fyrir límmiða, straumiða og smámiða, ásamt ráðum ef eitthvað fer úrskeiðis.

Straumiðar skref fyrir skref

  • Leggðu flíkina á slétt og hart undirlag. Strauborð eða borð með handklæði.
  • Settu miðann með nafninu upp á slétt efni án sauma: innan á hálsmál, streng eða merkimiða flíkurinnar.
  • Leggðu bökunarpappír eða þunnan klút yfir miðann.
  • Þrýstu straujárninu á miðann í um 15 sekúndur á miðlungshita (bómull), án gufu, án þess að hreyfa járnið.
  • Láttu kólna alveg áður en þú snertir miðann. Þá er hann fastur.

Á mjög þunnu nælonefni, eins og sumum pollagöllum, er betra að setja miðann á merkimiða flíkurinnar, þar sem efnið þolir hitann betur.

Límmiðar skref fyrir skref

  • Hreinsaðu flötinn með rökum klút og láttu hann þorna alveg.
  • Losaðu miðann af örkinni og leggðu hann á sléttan flöt: þvottamerkið innan í flíkinni, lok nestisboxins, hlið brúsans, innan á tungu skósins.
  • Þrýstu miðanum vel niður í nokkrar sekúndur, sérstaklega á brúnunum.
  • Bíddu í sólarhring áður en hluturinn fer í uppþvottavél. Þá er límið orðið fast.

Smámiðar

Sömu skref og límmiðar. Á kringlóttum penna er best að líma miðann eftir endilöngu, á gleraugum innan á spöngina og á hleðslutæki á stóru hlið kubbsins. Forðastu staði sem nuddast stöðugt, eins og pennahettu sem er sett á og tekin af.

Þvottur og viðhald

Límmiðar þola þvottavél við 40 og 60 gráður, þurrkara, uppþvottavél, frost og sólarljós. Straumiðar þola þvottavél og þurrkara, smámiðar það sama og límmiðar. Engir þeirra þurfa sérstaka meðhöndlun, en fyrstu þvottana má snúa flíkum við til öryggis.

Ef miði losnar

Straumiði sem losnar í fyrsta þvotti var yfirleitt ekki hitaður nógu lengi. Leggðu hann aftur á sinn stað og strauaðu í 15 sekúndur í viðbót. Límmiði sem losnar var oftast settur á óhreinan eða rakan flöt, eða á stað sem nuddast. Hreinsaðu flötinn og settu nýjan miða annars staðar á hlutinn.

Varahamur: aðalvefurinn er niðri vegna tölvuárásar á hýsingaraðila. Hér má skoða vörurnar en pantanir eru lokaðar í bili.