Nafnamiðar á föt og dót
Persónulegir nafnamiðar á fatnað, nestisbox og annað dót. Hannaðu þína eigin miða á innan við mínútu.
Af hverju nafnamiðar?
Vatnsheldir
Þola uppþvottavél, þvottavél og allt sem krakkar finna upp á.
Á augabragði
Sláðu inn nafn, veldu lit og letur — tilbúið.
Frí sending
Fast verð, sendingargjald innifalið innanlands.
Endingargóðir
Prentaðir með litföstum litum og gerðir fyrir daglega notkun.
Veldu tegund
Límmiðar · 33 x 12 mm
Vatnsheldir límmiðar á föt, nestisbox, drykkjarbrúsa, dót og skó. Þola þvottavél og uppþvottavél.
50 miðar í pakka
Straumiðar · 30 x 14 mm
Straujaðir miðar fyrir fatnað. Þola þvottavél og þurrkara.
50 miðar í pakka
Smámiðar · 16 x 6 mm
Litlir miðar fyrir penna, hleðslutæki og smádót.
60 miðar í pakka
Merkimiðar fyrir leikskóla og skóla
Á leikskólum og í skólum fer ótrúlegt magn af fatnaði og dóti á flakk: aukaföt, pollagallar, húfur, vettlingar, skór, nestisbox og vatnsbrúsar. Góðir merkimiðar með nafni barnsins eru einfaldasta leiðin til að allt rati aftur í rétt hólf. Nafnamiðarnir okkar eru hannaðir fyrir nákvæmlega þetta: vatnsheldir límmiðar sem þola þvottavél á fötunum og uppþvottavél á nestinu, og smámiðar á allt það smáa.
Þú hannar miðana sjálf á mínútu: sláðu inn nafnið, veldu lit, letur og tákn sem barnið þekkir, og við prentum þá á Íslandi og sendum heim frítt. Hver pakki inniheldur 50 eða 60 miða, nóg fyrir heilt leikskólaár af aukafötum, sundpokum og íþróttafötum.
Merkimiðar fyrir leikskóla → · Nafnamiðar fyrir skólann →
Hvaða miðar henta hvar?
Límmiðarnir fara á nánast allt, föt jafnt sem dót. Smámiðar og straumiðar bæta við þar sem þarf.
| Tegund | Hentar á | Festing og ending |
|---|---|---|
| Límmiðar 33 x 12 mm |
Föt (best á þvottamerkið), nestisbox, vatnsbrúsar, skór, leikföng, bækur, hjálmar | Vatnsheldir, þola þvottavél og uppþvottavél |
| Straumiðar 30 x 14 mm |
Fyrir þá sem vilja heldur strauja í fötin: húfur, vettlingar, sundföt | Strauað á, þolir þvottavél og þurrkara |
| Smámiðar 16 x 6 mm |
Pennar, blýantar, hleðslutæki, heyrnartól, gleraugu | Vatnsheldir, 60 miðar í pakka |
Ekki viss? Flestar fjölskyldur taka einn pakka af límmiðum: á fötin, nestið og skóna. Straumiðar eru í boði fyrir þá sem vilja heldur strauja.
Nafnamiðar á allt sem fer að heiman
Á föt
Límmiðarnir eru fatamerkin: límdir beint á flíkina á augabragði, best á þvottamerkið innan í henni, ekkert straujárn. Þeir þola þvottavél og þurrkara og henta á peysur, buxur, húfur, vettlinga, sundföt og íþróttaföt. Straumiðar eru líka í boði fyrir þá sem vilja heldur strauja.
Á skó
Límmiðar innan á tungu eða hæl skósins. Vatnsheldir, svo þeir þola snjó, slabb og sandkassann, og nógu sterkir til að fylgja inniskónum allan veturinn. Með tákni finnur barnið sína skó í skóhrúgunni sjálft.
Á nesti og brúsa
Límmiðar á lok nestisboxins og hlið brúsans. Þeir eru gerðir til að þola uppþvottavél aftur og aftur, svo nestið kemur heim úr matsalnum í stað þess að enda í óskilakassanum.
Á allt dótið
Leikföng, bækur, hjálmar, sundgleraugu, hleðslutæki og pennar. Límmiðar á stærri hlutina, smámiðar á þá mjóu. Allt sem fer á milli heimila, í leikskólann eða á æfingu kemur aftur ef nafnið er á því.
Þrjú einföld skref
Sláðu inn nafnið
Skrifaðu nafnið sem á að vera á miðunum.
Veldu útlit
Litur, letur og lítið tákn ef þú vilt.
Fáðu þá heim
Við prentum og sendum beint til þín.
Prentað á Íslandi, þolir þvott og notkun
Miðarnir eru prentaðir hér heima með litföstum prentlitum á efni sem er gert fyrir daglega notkun: þvottavél, þurrkara, uppþvottavél, sand, snjó og sjó. Þeir eru gerðir til að halda lit og festu í daglegri notkun. Af því að við prentum á Íslandi og sendum innanlands lendir þú aldrei í tolli, innflutningsgjöldum eða umsýslugjaldi: verðið sem þú sérð er það sem þú borgar, og sendingin er frí um allt land.